Náttúran í þínu nágrenni

Velkomin til útiverunnar

Hugmyndir að göngu- og hlaupaleiðum á náttúrustígum

Stígar í grennd við þéttbýli sem henta fyrir stuttar göngur og hlaup í náttúrunni.

Hér eru ekki upplýsingar um malbikaða stíga, þær er að finna á heimasíðum sveitarfélaga.

Ekki er heldur fjallað um lengri leiðir svo sem á hálendinu, upplýsingar um þær er að finna hjá ferðafélögum.

Erfiðleikastig

Leiðirnar eru af þremur erfiðleikastigum:

  • 1 skór. Léttar og stuttar leiðir, 3-6 km, ýmist á jafnsléttu eða í fjallendi. Henta allri fjölskyldunni.
  • 2 skór. Miðlungslangar dagleiðir á láglendi, 6-15 km og hækkun 100-300 m. Þarf að vera í nokkuð góðu formi.
  • 3 skór. Miðlungslangar dagleiðir í fjallendi, 6-15 km og hækkun meiri en 300 m. Þarf að vera í góðri þjálfun.

Veldu leið við hæfi þitt og eða samferðafólksins, þú ert alltaf á ferð á eigin ábyrgð.

Búnaður

Öruggast er að hafa alltaf vel hlaðinn síma meðferðis og geyma hann í plastpoka ef rignir. Einnig að  láta einhvern vita af göngu- eða hlaupaáætlun.

Í lengri ferðum borgar sig að hafa aukaföt og/eða álpoka, nesti, eitthvað að drekka og jafnvel orkugel eða suðusúkkulaði.

Dagspokar í Esjugöngu

Leið mánaðarins

Hólminn
Hólminn í Elliðaárdal

Stutt og létt ganga sem hentar allri fjölskyldunni, hentar líka vel til náttúruhlaupa. Gott skjól í skóginum, fuglalíf og kyrrð.

"Sá sem kemur aftur er aldrei sá sami og fór."
- Stefán Hörður Grímsson

Veðurspá

Sjá vef Veðurstofu Íslands hér.

Örugg ferðalög

Sjá vef Safe Travel hér.