Hugmyndir að göngu- og hlaupaleiðum á náttúrustígum í grennd við þéttbýli sem henta til æfinga og heilsuræktar
Skoðaðu leið mánaðarins hér neðar á síðunni!
Erfiðleikastig
Leiðirnar eru af þremur erfiðleikastigum:
- 1 skór. Léttar og stuttar leiðir, 3-6 km, ýmist á jafnsléttu eða í fjallendi. Henta allri fjölskyldunni.
- 2 skór. Miðlungslangar dagleiðir á láglendi, 6-15 km og hækkun 100-300 m. Þarf að vera í nokkuð góðu formi.
- 3 skór. Miðlungslangar dagleiðir í fjallendi, 6-15 km og hækkun meiri en 300 m. Þarf að vera í góðri þjálfun.
Veldu leið við hæfi þitt og eða samferðafólksins, þú ert alltaf á ferð á eigin ábyrgð.
Búnaður
Öruggast er að hafa alltaf vel hlaðinn síma meðferðis og geyma hann í plastpoka ef rignir. Einnig að láta einhvern vita af göngu- eða hlaupaáætlun.
Í lengri ferðum borgar sig að hafa aukaföt og/eða álpoka, nesti, eitthvað að drekka og jafnvel orkugel eða suðusúkkulaði.
Leið mánaðarins
Hólminn í Elliðaárdal
Stutt og létt ganga sem hentar allri fjölskyldunni, hentar líka vel til náttúruhlaupa. Gott skjól í skóginum, fuglalíf og kyrrð.
"Sá sem kemur aftur er aldrei sá sami og fór."
- Stefán Hörður Grímsson
