Um Útiveruna

Útivera er góð fyrir líkama og sál

Þessi heimasíða er  áhugamál mitt og varð til sem verkefni á námskeiði í heimasíðugerð. Ég er mikil útivera, hef æft með Náttúruhlaupum og þríþraut Breiðabliks, auk þess að vera jarðfræðingur og kortanörd. Ég hef gaman að því að prófa nýjar leiðir í útivistinni og stunda mína líkamsrækt að mestu leyti útivið.

Hugmyndin að síðunni kviknaði þegar ég tók eftir því að gönguvinkonur mínar rötuðu ekki alltaf á stefnumótsstaðina okkar. Ég hóf því gerð þessarar litlu heimasíðu til að hjálpa þeim að rata. Þegar ég var að undirbúa sumarleyfi eða vinnuferðir innanlands gekk mér stundum illa að finna hentuga náttúrustíga fyrir mína daglegu líkamsrækt, sem ég sá tækifæri til að bæta úr.

Ég birti ekki upplýsingar um malbikaða stíga því þær er hægt að finna á heimasíðum sveitarfélaga. Ekki er heldur um lengri leiðir, svo sem á hálendinu, því upplýsingar um þær er að finna hjá ferðafélögum eins og Ferðafélagi Íslands og Útivist og hjá hinum ýmsu ferðaþjónustuaðilum.

Maðurinn minn er duglegur að fara með mér og prófa að ganga og skokka nýjar leiðir sem ég bæti smám saman inn þegar ég er ekki á kafi í vinnu og sjálfboðastarfi.

Það væri gaman ef fleiri en gönguvinkonur mínar geti nýtt sér vefinn.

Bestu kveðjur, Matta

Gildi Útiverunnar

Ég vil stuðla að skemmtilegri og öruggri útiveru á náttúrustígum með fjölskyldu og vinum.