Æsustaðafjall og Reykjafell

Þessi leið er tilvalin fyrir byrjendur í fjallgöngum. Það er mjög fallegt útsýni á góðum degi og í júní og júlí er mikið um lúpínur á svæðinu.
Leiðin á kortinu er 5,6 km en einnig er hægt að ganga bara á Æsustaðafjall (220 m) og snúa þar við sem er þá um 2 km.

  • Sveitarfélag: Mosfellsbær.
  • Tegund: Göngu- og hlaupaleið.
  • Erfiðleikastig: 1-2 skór.
  • Lengd leiðar: 5,6 km.
  • Áætlaður göngutími: 60-90 mín.
  • Hækkun: Samtals um 230 m.
  • Upphaf leiðarinnar er merkt með stiku.
  • Tegund leiðar: Hringleið.
  • Aðkoma og bílastæði: Ekið er frá Mosfellsbæ upp í Mosfellsdal um Þingvallaveg (35), eftir tæpa 2 km er beygt til hægri inn á afleggjarann að Hlaðgerðarkoti og fljótlega beygt aftur til hægri inn í Skammadal. Við kartöflugarðana er lítið bílastæði.
  • Almenningssamgöngur: Strætó stoppar við stoppustöðina Mosfell sem er í 10-15 mín göngufjarlægð frá upphafi leiðarinnar.
Æsustaðafjall í júní.
Details
Æsustaðafjall og Reykjafell

Samkvæmt Kortasjá ÍSOR er berggrunnur svæðisins myndaður af basískum og ísúrum hraunum, 2,6-5,3 milljón ára (blátt), basísku og ísúru gosbergi og setlögum 0,8-3,3 milljón ára (grænt), eldra móbergi (brúnt) og súru innskotsbergi (appelsínugult).

Jarðfræðikort af Æsustaðafjalli og Reykjafelli.

Útgefið  7. júlí 2023.