Göngutúr með fjölskylduna

Strákur með bakpoka

Þegar börn eru með í för og jafnvel fjölskylduhundurinn líka er mikilvægt að huga að þeirra þörfum. Það er lítið gaman að vera á ferð með börn og dýr sem eru þreytt, þyrst, svöng eða illa búin því þau hafa minni þolinmæði og við fullorðna fólkið.

Börn gleyma sér gjarnan og eru tilbúin í lengri gönguferðir ef þau fá afþreyingu t.d. að tína ber, sveppi, blóm, fræ eða steina, kíkja á fugla í gegnum sjónauka, fara í fótabað í litlum læk o.fl.

Börn eru mismunandi eins og annað fólk, sum geta farið í langar gönguferðir en önnur styttri og verða foreldrar að vega og meta hvað er hæfilegt fyrir þeirra börn. Börnin mín eru orðin fullorðin og ég er ekki lengur með hund en það sem mér fannst hjálpa var meðal annars að:

  • Vera búin að kynna sér leiðina, að hún sé hæfilega löng.
  • Vera búin að skoða veðurspá.
  • Hafa lítinn bakpoka með helstu nauðsynjum.
  • Hafa vel hlaðinn síma, í plastpoka ef það rignir.
  • Hafa aukaföt til að bregðast við breytingum á veðri.
  • Vera með sólgleraugu og sólarvörn.
  • Vera með vatn eða annað að drekka, eða ílát ef það er gott rennandi vatn á leiðinni.
  • Vera með létt og orkuríkt snarl t.d. þurrkaða ávexti og kex.
  • Fyrir hundinn er þægilegt að hafa samanbrjótanlegan hundadall fyrir vatn og mat.
  • Gagnlegt er að hafa salernispappír, blautþurrkur, vasaklúta og litla ruslapoka.
  • Það getur komið sér vel að hafa litla poka fyrir ber, skeljar eða aðra skemmtilega hluti sem finnast á leiðinni.
  • Öryggisbúnaður getur komið sér vel s.s. pappírskort, áttaviti, álteppi, hælsæris- eða heftiplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf.

Mikilvægt er að láta einhvern vita af ferðum sínum og áætluðum heimferðartíma.

Útgefið  30. janúar 2024.