
Ég fer a.m.k. tvisvar í viku út að æfa hlaup í nágrenni heimilisins, helst á náttúrustíg ef ég hef tíma. Í miðri viku þegar ég fer stutt og er í mesta lagi eina klukkustund, þá finnst mér nóg að hafa með mér vel hlaðinn síma, hlaupabelti með litlum vatnspoka og kippi kannski með aukaflík til að fara í á eftir ef það skyldi vera hrollur í mér.
Hlauparar æfa löngu rólegu hlaupin gjarnan um helgar sem fara þá oft fram lengra fyrir utan byggð t.d. í Heiðmörk á höfuðborgarsvæðinu og taka a.m.k. 1 klst. Þá er fólk gjarnan með hlaupavesti, með helstu nauðsynjum og öryggisdóti, því þau hoppa ekki og skoppa á manni í hlaupinu.
Tékklistinn minn:
- Vel hlaðinn sími, í plastpoka ef það rignir.
- Vatn í vatnspoka, steinefnatafla til að setja í vatnið, stundum næringardrykkur.
- Næring sem maður getur innbyrt á stuttum tíma, t.d. gel.
- Aukaföt til að bregðast við breytingum á veðri t.d. regnjakki, ullarbolur, sokkar og buff.
- Sólgleraugu og sólarvörn.
- Derhúfa hentar vel í sólskini og til að skýla gleraugum í rigningu.
- Höfuðljós og broddar f. skóna eða negldir skór á haustin og veturna.
- Léttir göngu-/hlaupastafir í fjallendi.
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír og þurrkur.
- Öryggisbúnaður s.s. álteppi, hælsærisplástur, plástur, teygjubindi, verkjalyf.
Mikilvægt er að láta einhvern vita af ferðum sínum og áætluðum heimferðartíma.
Ef þú ætlar að fara í langa hlaupaferð í óbyggðum þá er búnaðarlisti t.d. hjá Ferðafélagi Íslands og ráðlegt er að fara með vönum aðila í slíka ferð.
Ef þig langar að læra meira um náttúruhlaup þá eru upplýsingar t.d. hjá natturuhlaup.is. Einnig eru hlaupahópar hjá mörgum íþróttafélögum um land allt, sem æfa ýmist á náttúrustígum, malbiki og/eða hlaupabrautum (e. track), og er hægt að finna upplýsingar um þá hjá hlaup.is.
Útgefið 19. desember 2023.