Hólminn í Elliðaárdal

Þessi leið er stutt og veðursæl því það er svo gott skjól í skóginum. 
Leiðin sem hér er sýnd er 3,6 km en hana er auðvelt að lengja eða stytta því það eru margir litlir stígar þvers og kruss um Hólmann.

  • Sveitarfélag: Reykjavík
  • Tegund: Göngu- og hlaupaleið.
  • Erfiðleikastig: 1 skór.
  • Lengd leiðar: 3,6 km.
  • Áætlaður göngutími: 30-60 mín.
  • Hækkun: Samtals um 25 m.
  • Upphaf leiðarinnar er við brúna yfir Elliðaárnar frá Hinu Húsinu, síðan er beygt til vinstri inn á göngustíg í skóginum.
  • Tegund leiðar: Hringleið.
  • Aðkoma og bílastæði: Um Rafstöðvarveg 110 Rvk. að bílastæði við Hitt húsið og gömlu Elliðaárstöðina.
  • Almenningssamgöngur: Strætó stoppar skammt frá Elliðaárstöð.
Hólminn á Aðventunni

Details
Hólminn

Berggrunnur Elliðaárdals einkennist af grágrýti sem á rætur að rekja til eldsumbrota á hlýskeiðum síðustu ísaldar. Víða má finna setlög frá lokum ísaldar, einkum strandset frá tímum hærri sjávarstöðu og neðarlega í dalnum má sjá stóra strandhjalla. Leitahraun mótar mjög landslag Elliðaárdals, það rann úr gígnum Leitin sem er á Bláfjallasvæðinu, niður Sandskeið og um Elliðavatn, fyrir um 4.500 árum. Elliðaárnar hafa rofið hraunið og falla nú í fallegum fossum um miðjan og neðanverðan dalinn. Kermóafoss sést t.d. vel frá Hólmanum. Sjá meira á https://www.skogargatt.is/ellidaardalur

Útgefið  9. desember 2024.