Sandafell við Þingeyri

Útsýni til Suðurs frá Sandafelli
Náttúruhlaup um vegslóðann sunnan Sandafells
Nestisaðstaða í Toyota-skóginum
Slóðinn út að Söndum
Sandafell
Við Svalvogaveg á Vesturgötuhátíð
Við tjaldstæði Þingeyrar

Þessi leið liggur í kringum Sandafell sunnan við Þingeyri. Sunnan Sandafells er útivistarskógur og nestisaðstaða. Á leiðinni er fallegt útsýni á góðum degi. Norðan fjallsins liggur leiðin meðfram þjóðveginum
Leiðin sem hefst við Þingeyrarkirkju, rétt við bílastæðið við sundlaugina og tjaldstæðið, liggur umhverfis fjallið og er um 8,3 km. Þetta er góð náttúruhlaupaleið og fyrir þá sem vilja lengri og erfiðari æfingu er hægt að bæta leiðinni upp og niður fjallið við. Leiðin er líklega heldur löng fyrir flest börn en það er líka hægt að ganga bara frá bílastæðinu við fjallið, inn í útivistarskóginn og til baka.

  • Sveitarfélag: Ísafjarðarbær
  • Tegund: Göngu- og hlaupaleið.
  • Erfiðleikastig: 2 skór.
  • Lengd leiðar: 8,3 km.
  • Áætlaður göngutími: 1,5-2,0 klst.
  • Hækkun: Samtals um 140 m.
  • Upphaf leiðarinnar er við Þingeyrarkirkju.
  • Tegund leiðar: Hringleið.
  • Aðkoma og bílastæði: Við tjaldstæði, sundlaug og kirkju á Þingeyri.
  • Almenningssamgöngur: Strætisvagnar Ísafjarðarbæjar

Sunnan Sandafells

Details
Sandafell

Berggrunnurinn á svæðinu er byggður upp af fornum basalthraunlögum (blágrýti) og setlögum. Skaginn milli Dýrfjarðar og Arnarfjarðar er mikill fjallasalur og ólíkur öðru fjalllendi á Vestfjörðum að því leyti að minna er um undirlendi, fjöllin almennt hærri og formfegurð þeirra minnir um margt á Alpana. Kaldbakur (998m), hæsta fjall Vestfjarða er miðpunktur skagans og gnæfir yfir umhverfi sitt. Meiri upplýsingar um jarðfræði og gönguleiðir um svæðið er m.a. að finna hjá Náttúrufræðistofnun Íslands og á Þingeyrarvefnum.

Útgefið  10. desember 2024