Skíðaganga hefur notið aukinna vinsælda undanfarin ár og einnig náttúruhlaup að vetrarlagi. Hvort sem maður er skíðandi, hlaupandi eða gangandi þá eykur það mjög á ánægjuna að vera vel búin.
Á vefsíðu Skisporet og tilheyrandi appi er hægt að sjá staðsetningu skíðaspora og aldur sporanna m.a. í Bláfjöllum, á Ísafirði, Hlíðarfjalli, Kjarnaskógi, Húsavík og Kópaskeri: https://www.skisporet.no/
Aðrar síður sem birta reglulega upplýsingar um stöðu spora eru m.a.:
- Heimasíða skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli https://skidasvaedi.is/. Þar er einnig að finna bækling með reglum um skíðagöngu og góð ráð um búnað, áburð, göngutækni o.fl.
- Heimasíða gönguskíðafélagsins Ullar sem sér um spor í Heiðmörk https://ullur.is/stada-a-spori/
- Skíða og skautafélag Hafnarfjarðar á Facebook.
- Skíðaganga á Reykjavíkursvæðinu á Facebook.
- Sporið, sem er bæði á Facebook og Strava.

Búnaður fer að sjálfsögðu eftir veðri, hvort um er að ræða stutta og létta eða langa og erfiða ferð, en tékklistinn minn er í grófum dráttum þannig:
- Vel hlaðinn sími, geymdur á hlýjum stað t.d. í vasa.
- Gott er að hafa hann líka í plastpoka ef líkur eru á úrkomu.
- Drykkur t.d. vatn í vatnspoka, orku- eða næringardrykkur eða heitur drykkur.
- Næring sem hentar lengd og tilgangi ferðarinnar.
- Aukaföt til að bregðast við breytingum á veðri t.d. ullarbolur, sokkar og aukavettlingar.
- Sólgleraugu eða skíðagleraugu og sólarvörn í sól, en augnlinsur í snjókomu.
- Der undir húfu getur hentað í sólskini og til að skýla gleraugum í snjókomu.
- Brautarskíði og -skór í skíðabraut.
- Ferða-/utanbrautarskíði og -skór eru notuð utan skíðabrauta.
- Broddar fyrir hlaupaskóna eða negldir skór.
- Gönguskíða-, göngu- eða hlaupastafir.
- Höfuðljós þegar fer að skyggja.
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir pokar fyrir notaðan pappír og þurrkur.
- Öryggisbúnaður s.s. flauta, álteppi, hælsæris- eða heftiplástur, plástur, teygjubindi, verkjalyf, ísöxi.
- Göngu- eða hlaupapoki.
Reglur sem gilda í gönguskíðabraut er t.d. að finna hjá skíðasvæði Ísafjarðar https://dalirnir.is/skidareglur/
Mikilvægt er að láta einhvern vita af ferðum sínum og áætluðum heimferðartíma.
Útgefið 30. janúar 2024.