Um Útiveruna

Útivera er góð fyrir líkama og sál

Þessi heimasíða er  áhugamál einnar útiveru og varð til sem verkefni á námskeiði í heimasíðugerð. Ég er jarðfræðingur og svolítill kortanörd og hef gaman að því að prófa nýjar leiðir í útivistinni.

Hugmyndin að síðunni kviknaði þegar ég tók eftir því að vinkonur mínar rötuðu ekki alltaf á stefnumótsstaðina okkar þegar við vorum að fara saman í gönguferðir. Ég ákvað því að búa til heimasíðu sem gæti hjálpað þeim og kannski fleirum að rata.

Ég tók líka eftir því þegar ég var að undirbúa sumarfrí og leita að góðum náttúrustígum um landið, til að stunda mínar náttúruhlaupaæfingar, að það var bara auðvelt að finna upplýsingar hjá sveitarfélögum um malbikaða stíga. Mér fannst því að hér væri upplýsingagat sem mætti stoppa í.

Maðurinn minn er mjög duglegur að fara með mér og prófa að ganga og skokka nýjar leiðir sem ég bæti smám saman inn.

Markmið mitt er að safna smám saman upplýsingum um stuttar göngu- og hlaupaleiðir á náttúrustígum í nágrenni byggðar fyrir fólk sem vill stunda útiveru sér til heilsuræktar og ánægju.

Upplýsingar um lengri leiðir með leiðsögn er að finna t.d. hjá Ferðafélagi Íslands, Útivist, Náttúruhlaupum og fjölmörgum öðrum aðilum.

Gildi Útiverunnar

Ég vil stuðla að skemmtilegri og öruggri útiveru á náttúrustígum með fjölskyldu og vinum.