Það getur borgað sig að huga að undirbúningi jafnvel þótt gangan sé stutt og í nágrenni byggðar.
Ánægjuleg gönguferð þarf að henta öllum í hópnum og gönguhraðinn verður að miðast við þann sem fer hægast.
Veðrið breytist hratt á landinu okkar, það getur skinið sól, rignt, snjóað og komið rok allt á sama deginum þ.a. við þurfum ávallt að skoða veðurspá og vera viðbúinn, jafnvel í stuttum gönguferðum.
Athugið að listinn hér á eftir er aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir þínum persónulegu þörfum og lengd gönguferðarinnar. Áður en ég fer í gönguferð eru alltaf nokkur atriði sem ég hef í huga:
Tékklisti
- Skoða veðurspá og velja föt, skó og annan búnað í samræmi við hana.
- Ef ég ætla að vera meira en eina klukkustund á gangi og/eða fer út fyrir fjölmennar leiðir hef ég gjarnan dagpoka með aukafötum, nesti, álteppi og öðrum öryggisbúnaði.
- Regnföt getur verið gott að hafa í pokanum, einnig aukaflík til að fara í ef stoppað er til að borða nesti, því manni getur kólnað við að setjast niður. Jafnvel sessu til að setjast á.
- Á sólríkum dögum er gott að hafa sólgleraugu eða derhúfu og flugnanet getur stundum komið sér vel.
- Nesti og eitthvað að drekka er nauðsynlegt í lengri gönguferðum en það fer eftir smekk hvers og eins hvað fer í nestisboxið. Í löngum dagsferðum er gott að hafa orkuríkt snarl.
- Vel hlaðinn farsími er gott öryggistæki og app eins og Google Maps er gott að kunna á. Áttavita getur komið sér vel að hafa og kunna að nota.
- Öryggisbúnað eins og álteppi, sárabindi og verkjalyf getur borgað sig að hafa ef seinlegt er fyrir sjúkrabíl að komast að svæðinu.
- Það er góð venja að láta einhvern vita af ferðum sínum og væntanlegum heimkomutíma.

Útgefið 13. desember 2023.