Náttúruhlaup í Vífilsstaðahlíð
Náttúrustígur í Vífilsstaðahlíð
Hraunveggur í Búrfellsgjá
Fjallkonur í göngu um Búrfellsgjá
Á leið úr Búrfellsgjá upp á Búrfell
Útsýni frá Búrfelli
Á leið niður af Búrfelli
Það getur verið ansi blautt í Vífilsstaðahlíð snemma vors
Þægilegir stígar liggja eftir endilengri Vífilsstaðahlíð og auðvelt að halda áfram til suðurs alla leið að Búrfellsgjá, upp á Búrfell og hringinn í kringum gíginn. Á leiðinni eru nokkur bílastæði. Sú leið sem hér er lýst hefst við Vífilsstaðavatn en auðvelt er að stytta leiðina með því að stoppa á bílastæði við snúningshlið, bílastæði við Maríuhella og stórt bílastæði við Heiðmerkurveg. Loks er bílastæðið á horninu, þar sem Heiðmerkurvegur beygir til norðurs, en þar er best að stoppa ef fólk vill einungis ganga/hlaupa Búrfellsgjá, en þaðan er leiðin tæplega 6 km.
- Sveitarfélag: Garðabær.
- Tegund: Göngu- og hlaupaleið.
- Erfiðleikastig: 2 skór.
- Lengd leiðar: 15 km en auðvelt að stytta.
- Áætlaður göngutími: 3-4 klst.
- Hækkun: Samtals um 220 m.
- Tegund leiðar: Hringleið að hluta, sitt hvoru megin við Heiðmerkurveg, en hægt að snúa við hvar sem er til að stytta.
- Aðkoma og bílastæði: Leiðin hefst við Vífilsstaðavatn. Fleiri bílastæði eru á leiðinni og er því hægt að hefja hreyfinguna frá nokkrum stöðum.
- Almenningssamgöngur: Strætó stoppar Við Vífilsstaði.
Útgefið 26. febrúar 2025
Vífilsstaðahlíð og Búrfellsgjá